Þá er fyrsti vínklúbbsfundur ársins framundan eða réttara sagt fimmtudaginn 9. febrúar kl.19:30 í Þjóðmenningarhúsinu! Við erum loksins komin í hring og ætlum í stórkostlegt Bordeaux smakk!! Ekki ónýtt að byrja 2012 með því að smakka Bordeaux vín!! Að vanda verður eldaður góður matur til að borða með dýrindis vínunum! Verðinu verður stillt í hóf eins og venjulega eða aðeins 4.590 kr. Hægt er að skrá sig á e-mail
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Vín mánaðarins janúar 2012
Þá er komið fyrsta vín mánaðarins árið 2012! Vínið sem varð fyrir valinu er argentínskt Cabernet Sauvignon á hlægilega lágu verði. Framleiðendur Las Moras línunnar hafa að mínu mati staðið sig mjög vel í að framleiða gott vín á góðu verði.
Það styttist í það að árið 2011 víki fyrir 2012 og eins og undanfarin ár valdi ég vín sem að mínu mati stóðu upp úr. Í ár er örlítil breyting, í staðinn fyrir 5 bestu vínin valdi ég 3. Af hverju?
Hér er sjöundi þáttur af Vínsmakkaranum. Í þessum þætti fáum við Matt Thomson vínframleiðanda frá Saint Clair í létt spjall og förum svo á veitingastaðinn í Turninum og borðum og drekkum góðan mat. Þættirnir eru sýndir á Sjónvarpsstöðinni ÍNN og hér á netinu en Drengsson Pics sér um framleiðslu þáttanna.