argentina

 

einarben_logo_2002

follow me on twitter

twitter_logo_header

Vínfyrirlestur

vinfyrirlestur

Hefur þú áhuga á að fá vínsmakkarann til þín til að halda vínfyrirlestur?

Kannaðu verðskrá hér

DVD Vínsmakkarinn

Vinsmakkarinn_2

DVD diskurinn Vínsmakkarinn er kominn!

Nú eru komin fyrstu eintökin af  “Vínsmakkarinn”, sem verða til sölu eingöngu í gegnum smakkarinn.is!!

Til að panta diskinn smellið hér
Vínklúbbur Prentvæn útgáfa
Síðasti vínklúbbsfundur fyrir sumarfríið var haldinn 11. júní á Einari Ben. Smakkað var Syrah frá öllum heimshornum, svo borðaðar gómsætar andabringur í boði meistarakokka Einars Ben. Mæting var góð og óhætt að segja að allir skemmtu sér mjög vel!

Þó Syrah og Shiraz sé sama vínþrúgan, finnst vínsmakkaranum framleiðslan á vínunum ólík. Syrah er oftast þurrara og meira tannínríkt eins og Rhone framleiðsla, aftur á móti er Shiraz mun meira alkóhól og ávaxtaríkt. Í þetta sinn voru blindsmakkaðar 7 mismunandi tegundir, allt Syrah nema eitt, en til að rugla fólk aðeins var sett eitt Bandarískt Shiraz í smökkunina.

Vínin sem voru í boði voru Glen Carlou 2005 frá Suður Afríku , Delicato 2005 frá U.S.A., Vinas Del Vero 2003 frá Spáni, Luigi Bosca 2005 frá Argentínu, Adobe 2006 frá Chile, Favius 2005 frá Ítalíu og Castano 2005 frá Spáni.

Vínklúbbur smakkarinn.is

Vilt þú ganga í klúbbinn? Vínklúbbur smakkarinn.is, er klúbbur fyrir alla, bæði lengra komna og þá sem eru nýbyrjaðir að hafa áhuga á víni. Það eru engin félagsgjöld, og greitt er bara þegar fólk mætir. Ef þú hefur áhuga, þá vinsamlegast sendu mér póst, eða hringdu í gsm: 693-6526

Með kveðju,
Stefán Guðjónsson
Vínsmakkarinn