|
5 bestu vínin að mati Vínsmakkarans árið 2009!! Árið 2009 var frekar óvenjulegt hjá Vínsmakkaranum. Vefsíðan smakkarinn.is lá niðri vegna bilunar og breytinga tvisvar á árinu. Salan og framboð á meðal dýr og dýru víni hrundi, og mörg mjög góð vín og vínframleiðendur eru farnir úr hillum Á.T.V.R. sennilega til frambúðar. Nokkrir minni vínumboðsaðilar hafa annaðhvort selt sín fyrirtæki eða sameinast, en þrátt fyrir margar breytingar í vínheiminum á Íslandi (og erlendis) er ennþá hægt að finna skemmtileg vín. Vegna erfiðleika með vefsíðuna, smakkaði ég fullt af virkilega góðum vínum sem ég hef ekki sett inn á síðuna ennþá. Nokkur af mínum uppáhalds vínum í ár falla í þann flokk. Öll verð á vínunum eiga að vera rétt, en verðbreytingar eru mjög hraðar í augnablikinu, vinsamlegast takið verðið með fyrirvara. Með þetta allt í huga skulum við byrja að telja niður að víni ársins 2009 á vínsmakkarinn!
Í 5 sæti......

Hverjum datt í hug að spænskt Syrah myndi taka 6 önnur vel valin syrah vín, víðs vegar að úr heiminum í nefið í blindsmakki? Ekki ég, það er víst en þetta vín gerði nákvæmlega það. Castano 2005, Spánn 2.189 kr. Hrá sólber, jarðvegur og fjós í nefinu. Þurrt, tannínríkt bragð með sólberja, leður, alkóhól, myntu og eikar bragði. Umboðsaðilinn er Ber ehf.
Í 4 sæti....... Það er komið til landsins vín frá einum besta Burgúnds vínframleiðanda sem ég hef smakkað í mörg ár. Ég smakkaði heildarlínuna, og hugsaði mest um hversu fínleg en samt flókin vínin eru. Ef öll Pinot noir væru svona myndi Pinot Noir, ekki Cabernet Sauvignon, vera vinsælasta vínþrúgan í heiminum. En góð Pinot Noir eru ekki ódýr, af og frá! Vínið í 4 sæti er eitt af ódýrustu vínum frá framleiðandanum Stephane Brocard sem sagt Marsannay Vieilles Vignes 2006 og á 3.889 kr. er ekki hægt að segja að þetta sé beint ódýrt! En peninganna virði engu að síður! Vínið er í senn silkimjúkt með kirsuberja og smá fjósa til að byrja með og breytist hægt og rólega með tímanum. Bragðið verður meira tannínríkt með leður, rifsberja og smávegis af negull því lengra sem það stendur í glasinu. Ég mæli með því að umhella því um klukkutíma fyrr. Þess má geta að fjallað verður um heildarlínuna eftir áramót. Umboðsaðili er Haugen/Víno
3 sæti..... Ég eins og flestir vín áhugamenn finnst ekkert skemmtilegra en að smakka vín sem kemur gersamlega á óvart! Vín sem maður býst ekki við að vera neitt, en svo þegar það er smakkað, bíddu nú við, þetta er fjandi gott!! Vínið í 3 sæti er akkúrat svona vín. Cantina Zaccagnini, Abruzzo, Ítalía Vínþrúga: Montepulciano d´Abruzzo Verð:1.991 kr. Vínið er létt í nefinu með smávegis af svörtum kirsuberjum og negul lykt. Meðal þurrt vín með kirsuberja, græn pipar, gulri papriku og negul bragði. Eftirbragðið er meðal langt og ferskt með smávegis af tannín. Þetta er smart vín, létt, ferskt, og bragðgott. Tilvalið að drekka það með grilluðu grísakjöti eða kjúkling. Abruzzo svæðið er ekki þekkt fyrir hágæða vín, en það er gaman að sjá að það er að breytast. Umboðsaðili er Vín Trio
2 sæti..... Ég hef aldrei verið sérstakur aðdáandi Beronia vína og hef sagt það oft að mér finnst þeir eigi að geta gert betur, jafnvel Tempranillo fannst mér upp og ofan í gegnum árin. En eins og ég segi, ef þú ert tilbúinn að gagnrýna aðila fyrir að gera slæm vín vertu tilbúinn að hrósa þeim fyrir að gera góð vín!! Beronia á svo sannarlega skilið hrós fyrir þetta vín, hvað þá hversu ódýrt það er!! Beronia Tempranillo 2006 frá Rioja, á Spáni, hefur mikið ristað brauð, rifsber og vanillu í nefinu. Vínið er bragðmikið en samt silkimjúkt með góðu vanillu, jarðaberja og kanil bragði. Eftirbragðið er langt með góðu jafnvægi á milli tannín og ávaxta. Vínið er tilbúið núna en má geyma í 2-3 ár í viðbót. Verðið er 1.998 kr. og umboðsaðili er Bakkus ehf.
Og í 1 sæti er...... Það verður að segjast að mér fannst það pínu vandræðalegt að velja 2 Pinot Noir í 5 efstu sætin og ennþá vandræðalegra að þau skildu bæði koma frá sama umboðsaðila. En ef maður stendur ekki við sannfæringu sína þá á maður ekki að standa í þessu! Vínið sem er í fyrsta sæti er ekki bara eina safnara vínið á listanum heldur það vín sem kom mér mest á óvart í ár. Hverjum hefði dottið í hug að austurrískt Pinot Noir gæti verið svona gott? Þess vegna vil ég óska Kollwentz Durr 2005 til hamingju með vín ársins hjá Vínsmakkaranum árið 2009! Kollwentz Durr er mjög opið í nefinu með eikar, villisveppa, jarðaberja og leður ilm. Þetta er bragð mikið vín með jarðaberjum, kirsuberjum, villisveppum, eik og tannín. Það er mjög gott jafnvægi á milli tanníns og ávaxta og eftirbragðið er langt og tannínríkt. Vínið er frábært núna en verður stórkostlegt eftir 3-4 ár og má geyma í 7-10 ár eftir það. Verðið er 6.689 kr. en þess má geta að umboðsaðilinn Haugen ehf. fékk mjög lítið magn til landsins.
|