|
Vín mánaðarins janúar 2010 |
|
Fyrsta vín mánaðarins í ár er vín sem ég var beðin um að smakka fyrir meira en 6 mánuðum síðan. Einhverra hluta vegna setti ég vínið í vínrekkann og steingleymdi því. Það var ekki fyrr en á milli jóla og nýárs þegar konan bað um smá hvítvíns glas á meðan ég var að elda að vínið var smakkað. Mínar væntingar voru litlar sem engar, í fyrsta lagi kemur það frá svæði sem er betur þekkt fyrir rauðvín (Veneto) og svo er vínþrúgan (Trebbiano) best þekkt fyrir ósköp litlaus og bragðlaus vín. Mér til mikillar ánægju bragðast vínið mun betur en ég átti von á! Vínið heitir Tommasi Laguna frá Veneto, Ítalíu, er 2008 árgangur og fæst í Á.T.V.R. á 1.999 kr.. Vínið er frekar opið í nefinu með peru og sítrónubrjóstsykurs lykt. Bragðið er í sætari kantinum, en þó ekki í desert víns sætleika, með sítrónubrjóstsykur, peru, melónu og græn epla tón. Eftirbragðið er ferskt og meðal langt. Vínið er ekki til að geyma og má drekka strax og verður í góðu lagi fram að 2011. Þess má geta að vínið er flutt inn af Mekka.
|