argentina

 

einarben_logo_2002

follow me on twitter

twitter_logo_header

Vínfyrirlestur

vinfyrirlestur

Hefur þú áhuga á að fá vínsmakkarann til þín til að halda vínfyrirlestur?

Kannaðu verðskrá hér

DVD Vínsmakkarinn

Vinsmakkarinn_2

DVD diskurinn Vínsmakkarinn er kominn!

Nú eru komin fyrstu eintökin af  “Vínsmakkarinn”, sem verða til sölu eingöngu í gegnum smakkarinn.is!!

Til að panta diskinn smellið hér
Stephane Brocard línan smökkuð Prentvæn útgáfa


Það eru ekki margir sem eru tilbúnir í dag að taka áhættu og byrja að flytja inn dýr vín frá annars óþekktum vínframleiðanda. Hvað þá frá svæði sem selst ekki sérstaklega vel í Á.T.V.R. í dag. Umboðsaðilinn Haugen ehf. ákvað samt að taka áhættu og byrja að flytja inn vín frá frekar lítið þekktum vínframleiðanda frá Burgúnd að nafni Stephane Brocard. Á þessum síðustu og verstu tímum spurði ég sjálfan mig “hvað eru þeir að hugsa? Og stóra spurningin, eru vínin þess virði?” Svarið er einfaldlega JÁ! Við erum mjög heppin á Íslandi varðandi vín frá Burgúnd, það er ekkert “sorp” til sölu hér, flestir framleiðendur eru taldir þó nokkuð góðir. Mitt álit á Stephane Brocard er einfalt, mér finnst Stephane Brocard með betri burgúndar vínum sem fást hér brocard_myndlandi. Af hverju? Vegna þess að línan í heild er gríðarlega vel unnin, það er ekki veikan hlekk að finna, að minnsta kosti ekki á vínunum sem eru flutt inn. Vínin eru ekki yfir eikuð eða of ávaxtarík heldur er frábært jafnvægi á milli. Öll vínin má drekka núna en þau verða samt betri með árunum. Eina gagnrýnin sem ég hef er að það vantar “standard” vín, sem sagt ódýrari línu sem almúginn getur prófað og metið hvort hann er tilbúinn að kaupa dýrari línuna eftir það. En ég efast ekki um að því verður kippt í lag hjá Haugen fyrr eða síðar. Hér fyrir neðan eru lýsingar á vínunum sem ég smakkaði.

Að lenda í fjórða sæti yfir vín ársins hjá mér eins og Marsannay gerði, segir allt finnst mér. Hér eru lýsingar sem ég skrifaði, en þess má geta að ég smakkaði 2006, en 2007 er það sem er fáanlegt í dag, og verðið er komið upp í 3.990 kr.
Í 4 sæti.......
Það er komið til landsins vín frá einum besta Burgúnds vínframleiðanda sem ég hef smakkað í mörg ár. Ég smakkaði heildarlínuna, og hugsaði mest um hversu fínleg en samt flókin vínin eru. Ef öll Pinot noir væru svona myndi Pinot Noir, ekki Cabernet Sauvignon, vera vinsælasta vínþrúgan í heiminum. En góð Pinot Noir eru ekki ódýr, af og frá! Vínið í 4 sæti er eitt af ódýrustu vínum frá framleiðandanum Stephane Brocard sem sagt Marsannay Vieilles Vignes 2006 og á 3.889 kr. er ekki hægt að segja að þetta sé beint ódýrt! En peninganna virði engu að síður! Vínið er í senn silkimjúkt með kirsuberja og smá fjósa til að byrja með og breytist hægt og rólega með tímanum. Bragðið verður meira tannínríkt með leður, rifsberja og smávegis af negull því lengra sem það stendur í glasinu. Ég mæli með því að umhella því um klukkutíma fyrr. Þess má geta að fjallað verður um heildarlínuna eftir áramót.
Umboðsaðili er Haugen/Víno  

pommardStephane Brocard Pommard 2005 er aðeins þyngra en Marsannay vínið og opnara í nefinu með smávegis af kanil og fjósa lykt. Bragðið er mjög fínlegt til að byrja með en þróast hratt í munninum með góðu tannín, fjósa og kanil bragði og rifsberja eftirbragð. Vínið er tilbúið að drekka núna en má geyma í 3 ár. Verðið er 5.690 kr.

 

Stephane Brocard Gevery-Chambertin 2005 var hrein unun að smakka! Lyktin var opin með mikið af fjósa, jarðaberjum og leðri í nefinu. gevrey_2Jarðaber, villisveppir og grænir tómatar voru mest áberandi í bragðinu og eftirbragðið var mjög tannínríkt með mjúku kryddi í lokin. Þetta vín er langt í frá að vera tilbúið og sennilega bestu kaupin fyrir vínsafnara! 10 ár í geymslu er ekki of langt og á 5.890 kr. alveg þess virði að kaupa nokkrar flöskur.

Stephane Brocard Corton Renardes 2005 var erfiðasta vínið til að átta sig á. Það var mjög lokað í nefinu fyrst en eftir klukkutíma í glasinu opnaði það sig aðeins og sýndi smá villisveppa og rifsberja lykt. Það sama má segja um bragðið, það sýndi ekkert nema gróft tannín fyrst og fór svo að opna sig og var bragðmikið með trufflum, grænni papriku, negul og rifsberjum. Eftirbragðið var mikið og gróft en samt með góðu jafnvægi á milli tanníns og ávaxta. Þess má geta að þetta er frábært vín sem er vel drykkjar hæft núna með smá umhellingu en kostar sitt á 9.990 kr. og ég mæli með því að geyma það í að minnsta kosti 8-12 ár. 

brocard_mersaultHvítvínið Stephane Brocard Meursault 2006 fannst mér hreinlega meiriháttar! Þetta vín er lýsandi dæmi um Burgúnd hvítvín upp á sitt besta. Lyktin er meira að segja silkimjúk með smávegis bráðnuðu smjöri, vanillu og léttum ananas. Bragðið var þykkt og ljúffengt með góðu kryddi, steinefnum smávegis af smjöri og ananas og melónur. Þetta er flókið vín en eftirbragðið var ekki of eikað en vínið er samt kryddmikið og meðal þurrt. Hægt er að geyma vínið í 3 ár en ég get alveg mælt með því núna. Verðið er 5.990 kr.