Þá er komið að fjórða þættinum af Sævar og Stefán blindsmakka! Í þessum þætti eru tvö mjög ólík vín smökkuð og dæmd og það sem kom mest á óvart var að ódýrara vínið var mun betra!
Fyrir þá sem hafa ekki áhuga á að horfa á þáttinn er hægt að lesa lýsingarnar hér fyrir neðan.
Fyrir þá sem hafa ekki áhuga á að horfa á þáttinn er hægt að lesa lýsingarnar hér fyrir neðan.
Vín 1. Sævar: Opið og aðlaðandi með dökk sæt ber(kirsuber) jafnvel sultuð og vottur af kakó í ilmi. Þurrt í munni með góð og mikil tannín og ferska sýru og miðlungilangt eftirbragð. Það vantar aðeins uppá jafnvægið þar sem ávöxtur er mjög lítill í bragði en möguleiki á að prufa vínið með mat sem hæfir s.s. léttsteikt rautt kjöt. Vínið er ungt og sennilega ekki eldra en 2007. Ágiskun mín er einskonar Sangiovese blanda, jafnvel Chianti. Stefán: Ávaxtaríkt með- svörtum kirsuberjum og eik í nefinu. Þurrt og tannínríkt með leður, grænni papriku og tóbaks bragði. Eftirbragðið er meðal langt. Þó að mér hafi fundist vínið allt í lagi vantaði það mun meira jafnvægi að mínu mati. Ég sagði að vínið væri Sangiovese (Chianti) 2007. Einkunn: LaLa Vínið var Chateau Timberlay Cuvee Prestige 2006 3.890 kr.
Vín 2 Sævar: Opið með kryddmikinn ilm, sæt og sykruð ber og er áfengi áberandi í ilmi sem bendi til hás alkóhólmagns (sennilega nýji heimurinn). Fyllingin er mikil og sæt í sér með mildum tannínum og ferskri sýru sem endar þurrt í munni. Eftirbragðið er langt og seyðandi og greinilegt að hér er vel gert vín. Vegna kryddsins og minninga um eitt vín þaðan þá giska ég á Shiraz frá Ástralíu árgerð 2007 Stefán: Mikill lakkrís, mynta og krydd í nefinu. Lakkrís, alkóhol, sólber, svartur pipar og smá mynta í bragðinu. Eftirbragðið er langt með mikið af kryddi og sólberjum. Mér fannst vínið alveg meiriháttar! Vel gert á allan hátt, tilbúið að drekka núna. Ég sagði að vínið væri Shiraz frá Ástralíu 2006 Einkunn: Þumalputta upp! Vínið var Amalaya de Colome 2008 frá Argentína 1990 kr.