argentina

 

einarben_logo_2002

follow me on twitter

twitter_logo_header

Vínfyrirlestur

vinfyrirlestur

Hefur þú áhuga á að fá vínsmakkarann til þín til að halda vínfyrirlestur?

Kannaðu verðskrá hér

DVD Vínsmakkarinn

Vinsmakkarinn_2

DVD diskurinn Vínsmakkarinn er kominn!

Nú eru komin fyrstu eintökin af  “Vínsmakkarinn”, sem verða til sölu eingöngu í gegnum smakkarinn.is!!

Til að panta diskinn smellið hér
Eldri greinar
Nokkrir góðir Ítalir fyrir sumrarið. Prentvæn útgáfa

italian_wine_mapFyrir ekki alls löngu síðan fór vínklúbbur vínsmakkarans í skemmtilegt ítalskt vínsmakk. Smakkað var á 10 mismunandi vínum sem komu frá svæði nyrst í Trentino alveg niður til Sikileyjar. Vínin voru líka í ólíkum verðflokkum eða frá 1.590 kr. upp í 4.390 kr. og gæðin í heild voru mjög góð og ekkert af þessum vínum var til skammar. Eitt sem kom svolítið á óvart er að ódýrasta vínið var kosið best í blindsmakkinu og að mínu mati fengu dýrari vínin ekki að njóta sín fyrr en þau voru smökkuð með matnum. En engu að síður var þetta mjög skemmtilegt smakk. Hér eru smá lýsingar á vínunum sem voru í boði.

Nánar...
 
Einn fallegasti bar landsins er komin aftur á fullt!! Prentvæn útgáfa

3rd_Floor_LOGO_LOK_Medium3rd floor bjór og vínbar í Veltusundi 1, býður upp á mikið úrval af bjór og víni í glösum! Á 3rd floor verður spiluð 80 ´s tónlist eftir kl:22:00 um helgar og hægt verður að sitja og spjalla og njóta góðar 80´s tónlistar og velja úr góðu úrvali af bjór og víni í glösum en þess má geta að www.smakkarinn.is velur vín mánaðarins sem verður selt á sanngjörnu verði. Einnig verður hægt að kaupa létta rétti frá kl. 22:00 til 02:00.
Bjór og vínbar/Beer and wine bar
Opinn til 03:00 á föstudögum og laugardögum
Open til 03:00 Fridays and Saturdays
Aldurstakmark 23 ára

 
Haugen kynnir Abadal vínin á Einari Ben. Prentvæn útgáfa

ymislegt_109_MediumNýlega var Anthony Crameri frá vínframleiðandanum Roqueta á landinu til að kynna Roqueta og Abadal vínin. Hér eru nokkrar myndir sem Vínsmakkarinn tók af kynningunni. 

 

 

Nánar...
 
Bombusmakk hjá Vífilfelli sló í gegn. Prentvæn útgáfa

ymislegt_106_MediumNýlega hélt Vífilfell hörku vínsýningu þar sem allir helstu vínframleiðendur þeirra mættu til að sýna vínin þeirra. Hér eru nokkrar myndir frá sýningunni.

Nánar...
 
Kampavíns smakk eins og það gerist best. Prentvæn útgáfa

ymislegt_025_MediumNýlega var haldið kampavíns smakk hjá vínklúbbi vínsmakkarans á Einari Ben. Smakkað var á 1 freyðivíni og 6 stórkostlegum kampavínum. Það fer ekki milli mála að kampavín í heild er með betri vínum sem hægt er að dreypa á og ekki að ástæðulausu að það er notað þegar fagna á. En er mikill munur á milli tegunda? Svarið er bæði já og nei, öll kampavín er gott að drekka ein og sér, en það kom á óvart að á meðan sum vín nutu sín mjög án matar þá hreinlega blómstruðu önnur með matnum (humar í hvítlauk í þessu tilfelli). Ekki var valið vín kvöldsins að þessu sinni, þau voru öll svo góð að ekki var sanngjarnt að velja á milli. Hér eru stuttar lýsingar á vínunum.

Nánar...
 
The forgotten 7 sló í gegn!! Prentvæn útgáfa

mars_2010_007Á síðasta vínklúbbsfundi var smakkað á frekar óþekktum vínþrúgum! Þetta smakk gaf fólki tækifæri á að smakka vín sem það myndi jafnvel ekki smakka annars. Vínin komu  alls staðar að úr heiminum, meðal annars frá Austurríki, Bandaríkjunum og Suður Afríku. Þetta sýndi að bara vegna þess að vínin eru ekki framleidd úr Pinot Noir, Cabernet Sauvignon eða Shiraz/Syrah þýðir ekki að þau séu ekki góð, af og frá!  Þess má geta að umboðsaðilum fannst hugmyndin svo skemmtileg að við fengum 8 vín í staðinn fyrir 7 og ég þurfti að afþakka fleiri!

 

Nánar...
 
Vínklúbbsfundur fimmtudaginn 18. mars kl.19:30! Prentvæn útgáfa

italian_wine_mapVínklúbbsfundur fimmtudaginn 18. mars kl.19:30! Á Einari Ben Veltusundi 1
Þemað er ítölsk vín!
Á næsta vínklúbbsfundi ætlum við að smakka 6 vel valin vín frá Ítalíu! Vínin koma frá nokkrum vel völdum svæðum og úr mismunandi vínþrúgum. Eins og venjulega verður boðið upp á mat að hætti matreiðslumeistara Einars Ben.  Í þetta skipti verður boðið upp á kjúklingarúllu fyllta með myrkilsveppum og pistasíum, borin fram með gljáðri svartrót og madeira sósu. Verði er stillt í hóf eins og venjulega eða aðeins 4.900 kr.!
Hægt er að skrá sig á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringja í 693-6526.

 

 
Saké námskeið vekur athygli! Prentvæn útgáfa

Saké námskeið vekur athygli!
sake__2009_034Í desember mánuði var haldið Saké námskeið á vegum vínumboðsaðilans Veigar á veitingahúsinu Einari Ben. Jimmy Nakamura og Alex G. Carnie fjölluðu um allar tegundir Saké sem eru í boði hjá hinum virta Saké framleiðanda Takara fyrir fullum sal af forvitnu fólki. Vínsmakkarinn var mættur á staðinn og tók nokkrar myndir á námskeiðinu.
Vínsmakkarinn vill þakka Jimmy og Alex fyrir skemmtilegt námskeið.

Nánar...
 
5 bestu vínin að mati Vínsmakkarans árið 2009!! Prentvæn útgáfa

5 bestu vínin að mati Vínsmakkarans árið 2009!!
Árið 2009 var frekar óvenjulegt hjá Vínsmakkaranum. Vefsíðan smakkarinn.is lá niðri vegna bilunar og breytinga tvisvar á árinu. Salan og framboð á meðal dýr og dýru víni hrundi, og mörg mjög góð vín og vínframleiðendur eru farnir úr hillum Á.T.V.R. sennilega til frambúðar. Nokkrir minni vínumboðsaðilar hafa annaðhvort selt sín fyrirtæki eða sameinast, en þrátt fyrir margar breytingar í vínheiminum á Íslandi (og erlendis) er ennþá hægt að finna skemmtileg vín.
Vegna erfiðleika með vefsíðuna, smakkaði ég fullt af virkilega góðum vínum sem ég hef ekki sett inn á síðuna ennþá. Nokkur af mínum uppáhalds vínum í ár falla í þann flokk. Öll verð á vínunum eiga að vera rétt, en verðbreytingar eru mjög hraðar í augnablikinu, vinsamlegast takið verðið með fyrirvara.
Með þetta allt í huga skulum við byrja að telja niður að víni ársins 2009 á vínsmakkarinn!

Nánar...
 
Jæja enn ein jólin að nálgast og fullt af girnilegum og krassandi mat framundan. Prentvæn útgáfa

En hvaða vín á að velja með? Vegna efnahags ástandsins í ár fannst mér skynsamlegra og áhugaverðara að finna vín sem er virkilega góð kaup frekar en vín sem eru í dýrari kantinum. allaines
Kalkúnn: Ef rauðvín er haft með kalkún eiga létt og ávaxtarík vín vel við, t.d. úr Gamay þrúgunni (sem því miður fæst varla lengur á Íslandi, hvað kom fyrir Beaujolais Nouveau eiginlega?), Pinot Noir frá Búrgundí eða Nýju Sjálandi. Í hvítvíni mæli ég með Tokay Pinot Gris frá Alsace eða bragðmiklu eikuðu Chardonnay frá Ástralíu, Chile eða Bandaríkjunum. Dæmi: Francois d'Allaines Bourgogne Hautes Cotes Beaune (Pinot Noir) Verð: 2.997. Vínið er frekar létt og þurrt með góðu fjósa, jarðaberja og rifsberja bragði

 

 

Nánar...
 
Kreppuvín 3 Prentvæn útgáfa
Það er að verða mjög erfitt að finna gott Alsace vín á góðu verði í dag, en sem betur fer er komið gott vín til landsins frá einum af stærstu alsace vínframleiðendum. Það er að segja Arthur Metz fyrirtækinu. Þeir sem þekkja mig vita að ég er mikill Alsace maður og fyrir mig að finna svona heilsteypta línu frá svona stórum framleiðanda er sjaldgæft! Þess vegna fannst mér nauðsynlegt að kynna fyrir ykkur restina af Arthur Metz vínunum þó ég hafi valið Gewurztraminer 2008 sem vín mánaðarins í Maí 2009.
Nánar...
 
12.000 flöskum af Masi Vaio Amaron stolið Prentvæn útgáfa

Um síðustu helgi var brotist inn í öryggisgeymslu hjá Masi. Af 2.5 milljón flöskum sem voru í geymslu var eingöngu tekið Vaio Amaron og Costasera Amarone, sem sýnir að þjófarnir vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera, 12.000 flöskur er nákvæmlega það magn sem passar í gám.

Vaio Amaron er framleitt á Serego Aloghieri búgarðinum, og talið hið upprunalega Amarone og er mikils metið .

Ítalska lögreglan heldur að þjófarnir ætli að selja vínin í Rússlandi og Austur Evrópu. Vínið er metið á 250.000 evrur, um 21.750.000 kr..

Til að lesa fréttina í decanter, smellið á eftirfarandi. Heimild: decanter.com

 
Norðurlandamót Vínþjóna - úrslitin þrjár konur kepptu um títilinn Prentvæn útgáfa

28.10.2007 17:55:12 Sá fáheyrður atburður átti sér stað í Norðurlandakeppni Vínþjóna sem var haldin í Helsinki um helgina að 6 af 9 keppendunum voru konur og þrjár þeirra komust í úrslit, strákunum til mikillar gremju. Stúlkan frá Danmörku varð Norðurlandameistari, keppandinn frá Svíþjóð varð nr 2 og frá Finnlandi nr 3. Alba komst ekki í úrslit.

Nánar...
 
Nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu 2007 ! Prentvæn útgáfa

Nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fór fram í Hótel- og matvælaskólanum þriðjudaginn 30. október. Samtals tóku 15 matreiðslunemar þátt í keppninni og fjórir framreiðslunemar. Sigurvegarar í framreiðslu urðu þær Tinna Óðinsdóttir nemi á JT-veitingum og Ylfa Sigþrúðardóttir nemi á Einari Ben.

Nánar...
 
Castello Banfi þremur árum seinna! Prentvæn útgáfa

Fyrir þremur árum síðan, þegar vefsíðan Vínsmakkarinn var rétt að byrja var ég svo lánsamur að heildasalan Bakkus bauð mér að smakka Castello Banfi línuna þeirra og skrifa mitt álit á vínunum. Þetta hjálpaði mér að mörgu leyti að móta hvernig ég vildi hafa Vínsmakkarann, sem sagt að vera ekki bara að skrifa um eitt og eitt vín heldur skrifa einnig um heilu framleiðslulínurnar hjá framleiðendum. Þetta kemur mjög vel út, lesendur geta valið vín út úr smakkinu sem þeim finnst spennandi, og ég get séð hvernig framleiðendurnir eru í heild sinni, ekki bara það besta hjá þeim heldur líka neyslu vínin þeirra.

Nánar...
 
Vín í jólagjöf Prentvæn útgáfa

Þá eru allir sem hafa áhuga á víni og eru svo lánsamir að geta skrifað um vín, búnir að skrifa um hvaða vín fer best með hátíðamatnum (mitt álit er í nýjasta Ísafoldarblaðinu). Í staðinn fyrir að bæta við þá flóru ákvað ég að breyta aðeins til. Það kom til tals hjá mér og vini mínum að við áttum sameiginlegt vandamál, annar vinur okkar er vín safnari eins og við, hann á gott safn af helstu hágæða vínum, en hann er svolítið þröngsýn varðandi val á víni. Rætt var um hvað vinur okkar væri að missa af mörgum góðum vínum vegna þess að hann er ekki tilbúin að fara úr hefðbundnum svæðum eða vínþrúgum. Þá ákváðum við að kaupa handa honum frábært vín sem var frekar óhefðbundið, vægt til orða tekið! Út frá því hugsaði ég með mér, af hverju ekki velja fimm frábær vín sem flestum dettur ekki í hug að smakka en eru engu að síður skemmtileg og væri tilvalin jólagjöf fyrir þá sem hafa gaman af góðu víni?

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 6