|
Undanfarin 10 ár hafa vín framleidd í Chile verið mjög vinsæl á Íslandi. Ástæðurnar eru þrjár, vínin eru ódýr, gæðin eru mjög góð miðað við verðið og hægt er að stóla á að bragðið og gæðin verði eins frá ári til árs, og hér á Íslandi erum við með há gæða framleiðendur.
Chile á ríka hefð í vínrækt, meðal annars fluttu Spánverjar inn vitis vinefera vínþrúguna til Chile á 16 öld. Á 19 öld var vínræktun í Chile bæði vinsæl og árangursrík. Mikið af vínþrúgutegundum frá Frakklandi voru fluttar til Chile ca. 1830 af Frakka að nafni Claudio Gay til ræktunar, og þrúgurnar sluppu fyrir horn frá tveimur af verstu faröldrum í vínrækt sem blossuðu upp í Evrópu ca. 1850-1895. Það var Phylloxera lús, sníkjudýr sem étur ræturnar á vínviðnum, og powdery mildew mygla, sem drepur allt sem er grænt í vínviðnum. Þó vínræktunin hafi verið vinsæl og gengið vel, voru gæðin ekkert sérstök fyrr en seint á 20. öldinni þegar útflutningur á víni hófst. Í kringum 1990 fór vín frá Chile að fá mikið hrós og vekja mikið umtal fyrir að vera ódýrt vín í háum gæðum. Núna í dag eru framleidd ódýr, meðal dýr og dýr vín í Chile. Nánast allt vín er í óvenju háum gæðum miðað við verðið.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|