|
Argentína er eitt af helstu vínræktar löndum í Suður Ameríku ásamt Chile. Það er samt mikill munur á Chile og Argentínu. Stærsti munurinn er að vínbændur í Chile eru búnir að finna bestu vínræktar svæðin og vínþrúgur sem henta best fyrir hvert svæði. Einnig eru þeir búnir að finna bestu framleiðsluaðferðirnar, á meðan það ríkir ennþá mikil óvissa og stefnuleysi í argentínskri vínræktun. Vandamálið hefur ekki verið það að vínframleiðendur kunni ekki sitt fag, heldur það að menn hafa verið sáttir við að selja ódýrt vín, sem er auðvelt að búa til, fyrir heimamarkaðinn. Það má líka segja að efnahagslíf Argentínu hefur ekki hjálpað heldur. En með dvínandi sölu á heimamarkaði hafa vínframleiðendur loksins áttað sig á að til þess að selja vínið sitt á erlendum markaði verða þeir að framleiða betra vín en áður fyrr. Engin efast um að ræktunar skilyrði eru góð í Argentínu en allir eru búnir að bíða eftir því að framleiðendur fari í það að búa til gott vín. Það má segja að undanfarin 5 ár hefur vín frá Argentínu tekið stóran kipp varðandi gæði, sérstaklega miðað við verð, og má segja að hægt sé að gera virkilega góð kaup á argentínskum vínum í dag. En Argentína er ekki bara að framleiða ódýr vín, einnig er hægt að fá bragðmikil, hágæða vín. Ég mæli með því að fólk fylgist vel með vínum frá Argentínu í framtíðinni.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|