argentina

 

einarben_logo_2002

follow me on twitter

twitter_logo_header

Vínfyrirlestur

vinfyrirlestur

Hefur þú áhuga á að fá vínsmakkarann til þín til að halda vínfyrirlestur?

Kannaðu verðskrá hér

DVD Vínsmakkarinn

Vinsmakkarinn_2

DVD diskurinn Vínsmakkarinn er kominn!

Nú eru komin fyrstu eintökin af  “Vínsmakkarinn”, sem verða til sölu eingöngu í gegnum smakkarinn.is!!

Til að panta diskinn smellið hér
Gæða hornið
Portvín Prentvæn útgáfa

Fyrir ekki alls löngu síðan kom nýtt portvín á markað hér á landi frá fyrirtækinu Portal, flutt inn af Víno ehf.. Þó að portvíns sala á Íslandi sé ekki ýkja mikil og í raun er mesta salan í kringum jólin og aðrar hátíðar, erum við með allra bestu framleiðendurnar til sölu á Íslandi, framleiðendur eins og Taylor´s, Warres, Fonseca og s.frv.. Þess vegna verð ég að segja að það er svolítið djarft hjá Víno að flytja inn Portal, ekki vegna þess að framleiðandinn er ekki góður, af og frá. Það má segja að Portal sé síðasti hágæða portvínsframleiðandinn sem var ekki fluttur inn. En vegna þess að salan á portvíni er ekki mikil held ég að aðal atriðið hjá Víno sé að geta sagt að þau bjóði upp á hágæða port til viðskiptavina sinna.

Nánar...
 
Gæða hornið Prentvæn útgáfa

Enn bætist við nýjung á smakkarinn.is, í þetta sinn er það gæðahornið. Lengi hefur blundað í vínsmakkaranum að fjalla um sterkt vín og jafnvel var auglýst eftir nafni fyrir dálkinn, en loksins er eitthvað að gerast í málinu. Í gæðahorninu verður fjallað um gæða sterkt vín, það gæti verið koníak, romm, gin,vodka, Armagnac, viskí eða eitthvað annað. Stundum verður tekin heil lína af ákveðinni tegund og stundum verður fjallað um staka tegund. Í fyrstu greininni verður fjallað um Landy koníaks línuna, nýtt Armagnac og skemmtilegt romm sem var smakkað í sumar. Ég vona góðir lesendur að það verði vel tekið á móti gæðahorninu og að lesendur finni eitthvað gagn í upplýsingunum. Við skulum byrja á....

Nánar...
 
Cutty Sark og The Glenrothes Viskísmakk Prentvæn útgáfa

Mánudaginn 3. September var haldið viskísmakk á Hótel Holti á vegum Veigar ehf. til að kynna Cutty Sark og The Glenrothes Viskí. Mike Harrison sölustjóri The Glenrothes var staddur á landinu og hélt mjög skemmtilegan fyrirlestur um viskíið. Þess má geta að báðar tegundirnar eru framleiddar af fyrirtækinu Berry Brothers and Rudd sem er eitt elsta vínsölufyrirtæki í Bretlandi.

En hvað er Cutty Sark viskí?

Cutty Sark var framleitt fyrst 1923, hugmyndin bak við það var að búa til ljóst viskí, sem væri ekki eins hrátt og bragðsterkt og viskí sem var framleitt í þá daga. Skipið Cutty Sark var þá nýkomið aftur til Bretlands og þar sem það var þjóðarstoltið var ákveðið að tengja nafnið á viskíinu við það.

Nánar...
 
Vodka, tær snilld? Prentvæn útgáfa

Vodka er án efa eitt vinsælasta sterka vínið í heiminum í dag. Það er auðvelt að blanda það með öðrum vínum, gosi og í safa. Ólíkt öðrum víntegundum breytast kokteilar ekki á bragðið þó vodka sé sett út í, sem gerir það tilvalið í kokteil blöndur ef þú vilt bæta við áfengi en ekki breyta bragðinu. Hvernig vodka er blandað fer allt eftir því hvar þú ert í heiminum. Á Íslandi er vodka og kók mjög vinsælt en á meðan bandaríkjamenn hugsa til hryllings til þeirra blöndu er ekkert að því að þeirra mati að blanda saman vodka og tonic eða vodka og engifer soda. Á sama tíma horfa austur Evrópu búa á þetta allt sem hálfpartinn guðlast og vilja helst ekkert annað en ískalt vodka óblandað!

Nánar...