argentina

 

einarben_logo_2002

follow me on twitter

twitter_logo_header

Vínfyrirlestur

vinfyrirlestur

Hefur þú áhuga á að fá vínsmakkarann til þín til að halda vínfyrirlestur?

Kannaðu verðskrá hér

DVD Vínsmakkarinn

Vinsmakkarinn_2

DVD diskurinn Vínsmakkarinn er kominn!

Nú eru komin fyrstu eintökin af  “Vínsmakkarinn”, sem verða til sölu eingöngu í gegnum smakkarinn.is!!

Til að panta diskinn smellið hér
Safnara vín
Safnaravín mánaðarins Apríl 2010 Prentvæn útgáfa

Darioush_cab_sauvignonÁ undanförnum 2-3 árum hef ég horft á ansi mörg hágæða safnara vín frá Bandaríkjunum hverfa af markaðnum hér heima með miklum söknuði (Beringar Private Reserve og Howell Mountain eru efst í huga). Þess vegna er gaman að sjá að það er ennþá einhver tilbúin að flytja inn gott safnaravín þó það sé vitað að það eigi ekki eftir að seljast í bílförmum. Nýjasta dæmið er vín frá Darioush í Napa Valley flutt inn af Vífilfelli.

Nánar...
 
Safnaravín mánaðarins Febrúar 2010 Prentvæn útgáfa

Safnaravín mánaðarins Febrúar 2010ch._berliquet
Mér finnst við hæfi að fyrsta safnara vín ársins 2010 skuli vera hörku gott Bordeaux eða réttara sagt St. Emilion Grand Cru frá 2005!! Chateau Berliquet Grand Cru er hörku gott vín með plómu, tóbak og kirsuber í nefinu. Bragðið er yndislegt, þurrt og tannínríkt með plómu, svörtum kirsuberjum og smá kanil. Eftirbragðið er alls ekki of stammt og jafnvægi á milli ávaxta og tanníns er nánast fullkomið! Vínið er gott núna en á langt í land með að vera tilbúið. Verðið er hátt á okkar mælikvarða eða 7.600 kr. en vínið er hverrar einustu krónu virði! Umboðsaðili er Þórshamar.

English

Nánar...
 
Vín mánaðarins September 2009 Prentvæn útgáfa
Án efa er einn uppáhalds vínframleiðandi minn í dag Kollwentz frá Austurríki. Það virðist ekki skipta neinu máli hvort þeir eru að búa til hvítvín eða rauðvín gæðin skína í gegn. Þó það séu til margir austurrískir framleiðendur sem búa til hágæða hvítvín er mun erfiðara að búa til hágæða rauðvín trekk í trekk, einfaldlega vegna þess að austurrískt loftslag og veðurfar býður almennt ekki upp á það. Það sem kemur ennþá meira á óvart er að það er ekki bara ein rauðvíns tegund sem virðist vera í háum gæðum heldur flest allar rauðvíns tegundir Duerr2006þeirra! En Kollwentz er ekki ódýrt! Af og frá, það verður að segjast að línan í heild sinni er í dýrari kantinum. Spurningin er hvort það sé peninganna virði? Svarið mitt er hiklaust já!

Gott dæmi er nýjasta safnara vínið Kollwentz Durr. Pinot Noir 2005 sem er á Burgúnd Grand Cru verði og Grand Cru gæðum!

Kollwentz Durr er mjög opið í nefinu með eikar, villisveppa, jarðaberja og leður ilm. Þetta er bragð mikið vín með jarðaberjum, kirsuberjum, villisveppum, eik og tannín. Það er mjög gott jafnvægi á milli tanníns og ávaxta og eftirbragðið er langt og tannínríkt. Vínið er frábært núna en verður stórkostlegt eftir 3-4 ár og má geyma í 7-10 ár eftir það. Verðið er 6.689 kr. en þess má geta að umboðsaðilinn Haugen ehf. fékk mjög lítið magn til landsins.
Nánar...
 
Vín mánaðarins September 2008 Prentvæn útgáfa
Condado de Haza Crianza 200587479l
Ribera del Duero, Spánn
Vínþrúga: Tempranillo
Verð: 2.440 kr. (ath. Þarf að sérpanta)
Umboðsaðli: Ber ehf.

Lýsing: Jarðvegur, svört kirsuber og negull í nefinu. Þurrt og tannínríkt vín með fjósa, svörtum kirsuberjum, leður, kanil og negul bragði. Eftirbragðið er langt og mjög tannínríkt.

Niðurstaða: Málið er einfalt, ólíkt flestum Crianza sem eru ætluð til drykkjar strax er þetta vín framleitt til að geyma (og þroskast) vel og lengi. Gott núna en eftir 5 ár verður þetta stórkostlegt.
 
Vín mánaðarins Ágúst 2008 Prentvæn útgáfa
Ciacci Piccolomini d´ Aragona, Pianrosso 200375589Brunello di Montalcino, Toskana, Ítalía
Verð: 5.900 kr. (ath. Þarf að sér panta)

Lýsing: Leður og svört kirsuber í nefinu. Fjósa, kirsuber, tannín, leður, kanil og örlítið af Valrhona súkkulaði eru mest áberandi í bragðinu. Eftirbragðið er mjög langt og tannínríkt.

Niðurstaða: Þvílíkt vín! Það fer ekki á milli mála að hér eru menn að vanda sig, þó 2003 væri ekki besta árið er þetta samt sem áður vín sem þarf að geyma í 7-9 ár í viðbót!
 
Vín mánaðarins apríl 2008 Prentvæn útgáfa
Nicolas Catena Zapata 2003ncz-03
Vínþrúgur: Cabernet Sauvignon 72%, Malbec 28%
Verð: 5.600 ath. þarf að sérpanta, um 50 flöskur til.
Umboðsaðili: Bakkus
Nánar...
 
Vín mánaðarins Mars 2008 Prentvæn útgáfa

Lucien Albrecht Weid Pinot Noir 200412277
Alsace, Frakkland
Verð: 3.100 kr.
Umboðsaðili: R.S. Vín

Lýsing: Ger, jarðaber og smá sveita í nefinu. Rifsber, jarðaber, sveita, villi sveppir og smávegis af leðri í bragði. Eftirbragðið er langt og gott.

Niðurstaða: Almennt er ég ekki mjög hrifin af Alsace pinot noir, flest eru of létt og of tútti frútti fyrir minn smekk. Þess vegna er gaman að smakka fyrsta flokks Alsace pinot noir eins og þetta. Er þetta vín jafn gott og Burgúnd Grand Cru? Auðvitað ekki, en það stendur fyllilega jafnfætis mjög góðu Búrgund premier cru, enda á svipuðu verði. Þetta vín er gott núna en verður best eftir 3 ár.

Nánar...
 
Vín mánaðarins Febrúar 2008 Prentvæn útgáfa
Chateau Grand Puy Ducasse 2000180
Pauillac, Bordeaux, Frakkland
Verð: 4.690 kr.
Umboðsaðili: K.K.Karlsson

Lýsing: Ristað brauð, eik, sólberja og kanill í nefinu. Tannínríkt vín með mikið af ristuðu brauði, pipar, sólberja, kanil og kaffi bragði. Langt og tannínríkt eftirbragð.

Niðurstaða: Það er sjaldgæft að finna svona frábært Bordeaux vín frá 2000 árgangi á svona góðu verði. Ef þú ert vín áhugamaður þá skaltu prófa eina flösku. Ef þú ert safnari þá dugar ekki minna en 12 stykki! Gott núna en þarf 10 ár í viðbót!
 
Vín mánaðarins Desember 2007 Prentvæn útgáfa
Oremus Tokaji Aszu Oremus 6 puttonyos 199591a
Tokaj, Ungverjalandi
Verð: 3.970 kr. (37.5 cl.)
Umboðsaðili: Ber ehf.

Lýsing: Hunang, rúsínur og mandarínur í nefinu. Dísætt vín með bragð af hunangi, hnetum, mandarínum og appelsínu berki. Eftirbragðið er langt og sætt.

Niðurstaða: 6 Puttonyos er erfitt að finna á Íslandi og er hverrar einustu krónu virði. Er ekki ágætis hugmynd að vera með skothelt og stórkostlegt vín með desertum yfir hátíðarnar? Fyrir þá sem vilja geyma nokkrar flöskur, er það ekkert mál, vínið verður hvort eð er ekki upp á sitt besta fyrr en eftir 15-20 ár!
 
Vín mánaðarins nóvember 2007 Prentvæn útgáfa
Truchard Cabernet Franc 200210942
Carneros Napa, Kalifornía, U.S.A.
Verð: 3.210 kr.
Umboðsaðili: Ber ehf.

Lýsing: Dökk kirsuber, eik og kaffi í nefinu. Paprika, kaffi, eik, og tannín eru mest áberandi í bragðinu. Eftirbragðið er langt en silki mjúkt.

Niðurstaða: Eitt best geymda leyndarmál í ríkinu í dag er án efa Truchard vínin, ekki skelfilega dýr og gríðarlega vel unnin, og að mínu mati er Cabernet Franc það besta í línunni.


Wine of the month November 2007
Truchard Cabernet Franc 2002
Carneros Napa, California, U.S.A.
Price: 3.210 kr.
Importer: Ber ehf.

Description: Dark cherries, oak and coffee on the nose. Paprika, coffee, oak, and tannins are the main flavors. The aftertaste is long and silky soft.

Opinion: One of the best kept secrets in the monopole today is the Truchard line, not overpriced and all their wines are well done. In my opinion the Cabernet Franc is the best of the bunch.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 5