|
Little James vín. Verðskuldað hróp á hjálp. |
|
|
Vín og matur er fjölskyldufyrirtæki í vín innflutningi sem heldur úti mjög skemmtilegri bloggsíðu sem ég hef gaman af að lesa. Um daginn báðu þeir um hjálp við að halda tveim af vínum þeirra í ríkinu, sem nefnast Little James. Almennt reyni ég að skipta mér ekki af þegar umboðsaðilar “plögga” sínum vínum. Mér finnst það í raun ekki við hæfi fyrir mig að blanda mér í baráttuna um hilluplássið í Á.T.V.R., en í þessu tilfelli fannst mér kall þeirra á hjálp svo einlægt að mér fannst ég verða að smakka vínin og gá hvort það var þess virði að hjálpa þeim að reyna að halda víninu í ríkinu.
|
|
Nánar...
|
|
Cune smakk |
|
|
 Nýlega hélt vínumboðsaðilinn Haugen/Víno heljarinnar mikið smakk á nýju línunni þeirra Cune frá Rioja, á Spáni. Oscar J. Urrutia kom til landsins til að leiða okkur í gegnum smakkið. Cune hefur skapað sér mjög gott orðspor í gegnum árin og eru þekktir fyrir vel framleidd vín. Þess má geta að Cune er næst elsti vínframleiðandi í Rioja og er einn af fáum sem á yfir 50% af vínökrunum sem eru notaðir við vínframleiðsluna.
|
|
Nánar...
|
|
Banfi smökkun |
|
|
Sævar Már Sveinsson skrifar grein fyrir smakkarinn.is. Einn albesti vínþjónn landsins hefur bæst í hópinn á smakkarinn.is og ætlar að skrifa vín greinar af og til fyrir vefsíðuna. Fyrsta greinin er um Banfi vínsmakk sem var haldið nýlega á vegum Bakkusar, víninnflutnings aðila. Við bjóðum Sævar velkominn.
Banfi smökkun Þann 16. Mars bauðst mér að vera með um smökkun á vínum frá hinu virta víngerðarhúsi Banfi á Ítalíu og fóru herlegheitin fram á 101 hótel í afslöppuðu en fagmannlegu umhverfi. Frá Banfi var staddur Alessandro Raise sem er svæðisstjóri Banfi vína fyrir Evrópu. Smökkuð voru vín allt frá léttum og frískandi hvítvínum allt til hins höfuga Brunello Montalcino.
|
|
Nánar...
|
|
Stephane Brocard línan smökkuð |
|
|
Það eru ekki margir sem eru tilbúnir í dag að taka áhættu og byrja að flytja inn dýr vín frá annars óþekktum vínframleiðanda. Hvað þá frá svæði sem selst ekki sérstaklega vel í Á.T.V.R. í dag. Umboðsaðilinn Haugen ehf. ákvað samt að taka áhættu og byrja að flytja inn vín frá frekar lítið þekktum vínframleiðanda frá Burgúnd að nafni Stephane Brocard. Á þessum síðustu og verstu tímum spurði ég sjálfan mig “hvað eru þeir að hugsa? Og stóra spurningin, eru vínin þess virði?” Svarið er einfaldlega JÁ! Við erum mjög heppin á Íslandi varðandi vín frá Burgúnd, það er ekkert “sorp” til sölu hér, flestir framleiðendur eru taldir þó nokkuð góðir. Mitt álit á Stephane Brocard er einfalt, mér finnst Stephane Brocard með betri burgúndar vínum sem fást hér landi. Af hverju? Vegna þess að línan í heild er gríðarlega vel unnin, það er ekki veikan hlekk að finna, að minnsta kosti ekki á vínunum sem eru flutt inn. Vínin eru ekki yfir eikuð eða of ávaxtarík heldur er frábært jafnvægi á milli. Öll vínin má drekka núna en þau verða samt betri með árunum. Eina gagnrýnin sem ég hef er að það vantar “standard” vín, sem sagt ódýrari línu sem almúginn getur prófað og metið hvort hann er tilbúinn að kaupa dýrari línuna eftir það. En ég efast ekki um að því verður kippt í lag hjá Haugen fyrr eða síðar. Hér fyrir neðan eru lýsingar á vínunum sem ég smakkaði.
|
|
Nánar...
|
|
Las Moras smakk |
|
|
Er Argentína að taka við af Chile sem bestu kaup í rauðvíni í Á.T.V.R.? Fyrir u.þ.b. 18 árum síðan kom einn helsti vínsérfræðingur heims, Serena Sutcliff til landsins og hélt mjög skemmtilegan fyrirlestur um vín. Við lok hans spurði ég hvaða landi ætti að fylgjast helst með í framtíðinni varðandi gæði á vínum. Hún svaraði hiklaust Argentínu. Að hennar mati myndi Argentína verða betri en bæði Ástralía og Chile, ekki bara gæðalega séð heldur í verðlagningu líka. Í þá daga var ég yfirþjónn á Argentínu Steikhús og fannst þessi fullyrðing mjög athyglisverð. Ég smakkaði nokkur argentínsk vín í þá daga og fannst flest þeirra vægt til orða tekið ekki sérlega góð! En vegna virðingar minnar fyrir konunni hef ég fylgst vel með argentínsku víni og vín framleiðendum síðan. Og viti menn, orð hennar hafa ræst!
|
|
Nánar...
|
|
Fascoli Gino og Bertani smakk |
|
|
Fyrir áramót fór ég í heljarmikið vínsmakk hjá Vífilfell. Fyrir áramót skrifaði ég grein um helstu vínin nema Veneto vínframleiðandann Fascoli Gino og Bertani. Mér fannst flest vínin frá þessum tveim aðilum það sérstök að ég vildi fjalla um þau sér. Uppgefið verð á víninu er að mínu besta viti rétt, en með alla steypuna og vitleysuna sem er búin að vera í Á.T.V.R. varðandi breytingar á verði svo ég tali ekki um gengissveifluna frægu gætu sum verð breyst lítillega. Þá skulum við byrja á Bertani!
|
|
Nánar...
|
|
Vífilfells vínsmakk |
|
|
Til að kynna nokkur af betri vínunum sínum hélt Vífilfell stórt vínsmakk nýlega. Í boði voru vín frá meðal annars Frakklandi, Ítalíu, Chile, Ástralíu, og Argentínu. Vegna þess að yfir 30 vín voru í boði ákvað ég að í staðinn fyrir að fjalla um þau öll ætla ég að fjalla um þau 9 vín sem mér fannst koma best út. Undantekning frá því verða tveir vínframleiðendur Bertani og Fascoli Gino frá Veneto á Ítalíu. Þau vín voru það góð og sérstök að þau fá sér umfjöllun á næstunni. Hér eru lýsingar og niðurstöður mínar.
|
|
Nánar...
|
|
McGuigan vínsmakk |
|
|
Þá er ferðinni heitið til Ástralíu í vínsmakk og fyrir valinu varð framleiðandi sem hefur verið fáanlegur af og til á Íslandi í mörg ár, Mcguigan Wines. Vínin hafa verið frekar lítt þekkt sem er synd vegna þess að það eru nokkur vín í boði sem eru bara fantagóð og fyllilega samkeppnishæf við önnur áströlsk vín á sama verði, og ég vil meina að G.T.R. frá Mcguigan sé besta G.T.R. á íslenska markaðnum. R.S. vín sem flytur Mcguigan inn leyfði mér að smakka nokkur vín sem fást hér á landi ásamt Tempus two víninu sem er framleitt af sama fyrirtæki (Australian vintage ltd.). Hér fyrir neðan er smá lýsing á vínunum og mitt álit.
|
|
Nánar...
|
|
Ciacci Piccolomini d´Aragon smakk |
|
|
Nýlega fór Víno Ehf. að flytja inn vín frá hinum virta vínframleiðanda Ciacci Piccolomini d´Aragon í Montalcino, frá Toskana héraði á Ítalíu. Almennt eru vínin talin í mjög háum gæðum og ekta safnara vín. Að framleiða nær eingöngu safnara vín hefur bæði kosti og galla. Að sjálfsögðu þýðir það að við vínsafnarar fáum tækifæri á að njóta þess að fylgjast með víninu þroskast og dafna en gallin er sá að venjulegir neytendur fá ekki tækifæri að smakka vínin þegar þau eru upp á sitt besta t.d. eftir 5-10 ár, heldur smakka þeir vín sem eru ennþá óþroskuð. En að fá að smakka svona vín minnir mig á af hverju ég safna víni. Mikið verður gaman að smakka þessi vín á næstu árum.
|
|
Nánar...
|
|
Ventisquero vínsmakk |
|
|
Það fer ekki fram hjá neinum að Chile er án efa “heitasta” vínsvæðið í dag ef skoðuð er sala í Á.T.V.R., enda er góð ástæða fyrir því. Flest Chile vín eru ódýr en eru í mjög góðum gæðum og vegna þess að veðurfar er alltaf mjög svipað frá ári til árs þarf ekki að hafa áhyggjur af því að vínin breytist mikið á milli ára. Nýjasti vínframleiðandinn frá Chile á íslenska markaðinum er Ventisquero. Hann er strax búin að ná miklum vinsældum á Íslandi, enda með ódýrt en vel gert vín í heild sinni. Umboðsaðilinn S.J.F. innport ehf. flutti inn þrjú mismunandi Cabernet en sýndi einnig hugrekki og djörfung og flutti inn tvö Shiraz, mér til mikillar ánægju og á hann hrós skilið fyrir það. Ég er ekki að segja að Shiraz frá Chile hafi eitthvað í Áströlsk Shiraz, en gaman er að sjá þegar umboðsaðilar eru tilbúnir að flytja inn eitthvað annað en hefðbundnar vínþrúgur eins og Cabernet eða Merlot frá Chile.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|