|
Sex góð vín til að drekka með grill matnum yfir verslunarmannahelgi. |
|
|
Þá er komið að síðustu stóru útileguhelgi ársins, hinni óviðjafnanlegu verslunarmannahelgi (eða þjóðhátíð fyrir þá sem eru í Vestmannaeyjum)! Þó að kassavín séu mest áberandi í útilegum fannst mér tilvalið að velja 6 góð vín (í flöskum) sem mér finnst tilvalin með góðum grillmat. Svo hvað passar með..... Kjúkling og grísakjöti? 2 góð eru.....
|
|
Nánar...
|
|
Hvað er tannín? |
|
|
Nýlega fékk ég e-mail frá manneskju sem hefur áhuga á víni og vildi fræðast meira. Hún spurði einnar mjög góðrar spurningar, spurningar sem ég fæ reyndar ansi oft, “hvað er tannín? Hver er munurinn á milli lítið tannín, mjúkt tannín og mikið tannín?” Góð spurning, og hér er svarið.
|
|
Nánar...
|
|
Allar vínþrúgur hafa sérstök einkenni!!!! |
|
|
Allar vínþrúgur hafa sérstök einkenni, sem maður finnur alltaf, en mismunandi mikil, og fer eftir því hvort þeim er blandað við aðrar vínþrúgur. Að þekkja þessi einkenni getur hjálpað fólki í leit að víni. Hér fyrir neðan eru lýsingar á helstu rauð- og hvítvíns-vínberjum og með hvaða mat þau passa.
|
|
Nánar...
|
|
Pizza og vín |
|
|
Þegar ég fékk júní hefti Wine Spectator í hendur og sá forsíðuna verð ég að viðurkenna að ég gat ekki annað en brosað! Málið er að oftar en ekki þegar ég er með vín námskeið er ég beðin um að mæla með einhverju víni með ákveðnum mat, t.d. hvers konar vín passar með kjöti, fiski og o.s.frv.. Fólk hlustar almennt og er yfirleitt sammála mér. En um leið og ég fer að nefna hvaða vín mér finnst passa með pizzum þá fer fólk að lyfta augabrúnum, hvolfa augum og horfa á mig eins og ég sé virkilega gengin af göflunum!
|
|
Nánar...
|
|
Hvað er sólpallavín? |
|
|
Þá er síðasti “sumar” mánuðurinn framundan, sem sagt síðasti mánuðurinn til að ferðast um allt land með hjólhýsi eða fellihýsi, eða til að setjast út á sólpallinn og njóta góða veðursins með vinum og kunningjum. Ég held að flestir séu sammála um að það er fátt skemmtilegra en að setjast út í góðu veðri með vinum sínum og spjalla um daginn og veginn. Hvort sem það er í útilegu eða heima hjá sér skiptir engu máli, það er félagsskapurinn og andrúmsloftið sem ræður ríkjum og hvað er betra en að fá sér glas af einhverju léttu og skemmtilegu víni með spjallinu?
|
|
Nánar...
|
|
Gin |
|
|
Eins og með mörg önnur sterk vín er það mjög útbreiddur misskilningur að öll gin séu búin til eins og helsti munurinn er hver framleiðir vínið. Það er ekki raunin, það eina sem öll gin eiga sameiginlegt er einiber sem er aðal uppistaðan í öllum uppskriftum af gini. Annar misskilningur er að gin sé eingöngu búið til í Bretlandi, öðru nær mörg mjög góð gin eru framleidd í Hollandi, Frakklandi, Bandaríkjunum og víðar. Meira að segja var gin upphaflega búið til í Hollandi og þá undir nafninu Genever! Genever var fyrst búið til í Hollandi á átjándi öld af lækni að nafni Franciscus Sylvius, hann bjó þetta til sem lyf til að lækna allt frá kvefi til liðagigtar. Þó svo að vínið hefði engan lækninga mátt varð þetta mjög vinsæll drykkur og fór að breiðast út um alla Evrópu.
|
|
Nánar...
|
|
Lífrænt ræktað vín, ekki bara tískusveifla |
|
|
Þegar ég var krakki að alast upp í bandaríkjunum á sjöunda áratugnum, var fjallað mjög neikvætt um allt sem heitir “lífrænt”. Í þá daga var okkur sagt að lífrænt ræktaðar vörur væru að mestu leyti unnar hjá gömlum hippum í bænda samfélögum “Communes” og ekki allt sem var ræktað var löglegt! Sem betur fer hefur viðhorfið og hugsunar hátturinn breyst með tímanum og bændur eru að viðurkenna að lífrænt er ekki svo galið. En það eru ekki bara grænmetis bændur sem eru að breyta hugsunar hætti sínum heldur líka vínbændur, og mun fleiri eru að breyta vínekrum sínum í lífrænar ekrur á hverju ári.
|
|
Nánar...
|
|
Koníak |
|
Koníak, eftirlætis drykkur íslendinga með kaffinu.
Það fer ekki á milli mála þegar íslendingar (sérstaklega karlmenn) eru búnir að borða góða máltíð á veitingahúsi, er punkturinn yfir i-ð að fá sér kaffi og eitthvað með því. Oftast verður gott koníak fyrir valinu. En af hverju veljum við koníak frekar en eitthvað annað? Til eru margar tegundir af brandi frá Spáni, Ítalíu, Bandaríkjunum og jafnvel Frakklandi. En er ekki koníak í raun og veru ekkert annað en brennt vín (brandí)? Ó nei, ekki alveg svo einfalt. Eins og kampavín er konungur freyðivína þá er koníak konungur brandís. Þó margir framleiði mjög gott brandí, og sumir framleiðendur vilja meina að þeir búi til jafngott brandi og koníak, er það viðurkennt hjá flestum að ekkert brandí er eins gott og koníak.
|
|
Nánar...
|
|
Kampavín |
|
Kampavín er hátíðarvín með meiru!
Á mínum langa ferli sem framreiðslumaður hef ég komist að því að þegar fólk vill fagna einhverju, er nánast alltaf sagt “þjónn, komdu með kampavín!” það er eitthvað við þetta yndislega, freyðandi vín sem gerir góðan dag ennþá betri. Kampavín er notað til að fagna sigri í keppnum, í brúðkaupsveislum, afmælum, útskriftum og ýmsu öðru. En af hverju kampavín? Hvað gerir kampavín svo aðlaðandi að fólk út um allan heim lítur á vínið sem hina bestu leið til að fagna? Í raun er svarið einfalt, það eru litlar gos kúlur á stærð við títa prjóns haus sem breyta frekar bragðlitlu og miðlungs víni í þetta stórkostlega og flókna vín sem fólk lítur á sem hið eina sanna hátíðar vín.
|
|
Nánar...
|
|
Hvað er desert vín? |
|
|
Desert vín er hálf gert gælunafn fyrir hvítvín sem er mjög sætt á bragðið. Algengasta aðferðin til að búa til vínin er að bíða eftir ákveðinni tegund af myglu (botrytis cinerea) sem ræðst á vínberin sjálf. Þegar það gerist minnkar vatnsinnhald verulega á meðan sykur magnið eykst án þess að vínberin eyðileggist. Útkoman er þetta yndislega sæta vín með gylltum blæ. Frægasta vínsvæði með sætum vínum er án efa Sauternes í Frakklandi, þar sem úr bestu árgöngunum eru búin til dýrustu og bestu sætu vín í heimi.Vínið má nota sem fordrykk, með paté eða kæfu, og að sjálfsögðu með desertum og ostum. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 2 |