Þá er komið að Sævar og Stefán blindsmakka #5. Í nýjasta smakkinu fá bæði vínin þumalputta upp sem er í fyrsta skipti síðan við byrjuðum með þáttinn. Eins og alltaf tókst okkur að skjóta sjálfa okkur í fótinn með fyrsta vínið en það tókst að negla niður seinna vínið (einnig í fyrsta sinn síðan þættirnir byrjuðu)! Fyrir þá sem hafa ekki áhuga á að horfa á þáttinn er hægt að lesa okkar álit neðar.
Þá er komið að fjórða þættinum af Sævar og Stefán blindsmakka! Í þessum þætti eru tvö mjög ólík vín smökkuð og dæmd og það sem kom mest á óvart var að ódýrara vínið var mun betra!
Fyrir þá sem hafa ekki áhuga á að horfa á þáttinn er hægt að lesa lýsingarnar hér fyrir neðan.
Fyrsta myndabandið með Sævari Má Sveinssyni og Vínsmakkaranum að blindsmakka, sló heldur betur í gegn! Ákveðið hefur verið að halda áfram með þáttinn á mánaðar fresti. Smá breyting verður gerð núna, við Sævar reynum að giska á hvaða vín er í boði og hvaðan þau koma! Að segja að það sé erfitt verkefni er vægt til orða tekið!! En að sjálfsögðu er aðalverkefnið að lýsa vínunum og ákveða hvort þau standa undir væntingum. Eins og síðast er vínunum gefin einföld einkunn, þumalputti upp þýðir mjög gott vín, lala þýðir að vínið sleppur og þumalputti niður þýðir að vínin stendur ekki undir væntingum.
Ákveðið hefur verið að byrja með nýjan dálk sem heitir einfaldlega Sævar og Stefán blindsmakka! Stefán Guðjónsson (vínsmakkarinn) og Sævar Már Sveinsson margverðlaunaður vínþjónn blindsmakka tvö vín einu sinni í mánuði og segja sitt álit og gefa víninu einkunnir. Til að passa upp á að vera sem hlutlausastir eru vínin valin af þriðja aðila, í þessu tilfelli Inga Rafni Haukssyni yfirþjóni á Einari Ben. Hann fékk 4.000 kr. og var beðin um að fara og kaupa vínin. Hann mátti nota allan peninginn eða hluta af honum.