argentina

 

einarben_logo_2002

follow me on twitter

twitter_logo_header

Vínfyrirlestur

vinfyrirlestur

Hefur þú áhuga á að fá vínsmakkarann til þín til að halda vínfyrirlestur?

Kannaðu verðskrá hér

DVD Vínsmakkarinn

Vinsmakkarinn_2

DVD diskurinn Vínsmakkarinn er kominn!

Nú eru komin fyrstu eintökin af  “Vínsmakkarinn”, sem verða til sölu eingöngu í gegnum smakkarinn.is!!

Til að panta diskinn smellið hér
Vín Mánaðarins
Vín mánaðarins Ágúst 2010 Prentvæn útgáfa

abadal_cab-temp
Þá er sumarið að klárast, sólin sest fyrr á kvöldin og hægt og rólega farið að kólna. Af einhverri ástæðu fer fólk að drekka meira rauðvín og minna hvítvín þegar fer að kólna og vínsmakkarinn er engin undantekning þar. Eitt vín sem ég tók ástfóstri við í sumar er vín frá frekar lítið þekktu svæði á Spáni að nafni Pla de Bages.

Nánar...
 
Vín mánaðarins júní 2010 Prentvæn útgáfa

vitoria_crianza

 

Vín mánaðarins í júní kemur frá einu vinsælasta vínsvæði á Spáni, hvorki meira né minna en Rioja. Rauðvín frá Rioja hefur alltaf fallið Íslendingum í geð, enda eru vínin oftast vel unnin og frekar í ódýrari kantinum.

Nánar...
 
Vín mánaðarins maí 2010 Prentvæn útgáfa

columbia_crest_two_vines

 

 

Ein af afleiðingum kreppunnar er sú að ríkisstjórnin fór að skattleggja vín upp úr öllu valdi eins og við höfum séð undanfarin tvö ár. Síðan þá hefur þrennt gerst. Fyrst varð aukning á heimabruggi á léttvíni, bjór og sterku víni til muna, svo hefur smygl á víni ekki verið svona áberandi síðan á áttunda og níunda áratugnum (gott ef vinstri stjórn var ekki við völd þá líka!!).

Nánar...
 
Vín mánaðarins Mars 2010 Prentvæn útgáfa

kasauraKasaura Montepulciano d´Abruzzo, Ítalía 2008
Þó ég hafi smakkað mörg góð vín í mars var ég var farin að efast um að ég myndi finna eitt nógu gott til að vera vín mánaðarins.  Það er að segja þangað til það var haldinn vínklúbbsfundur með ítölsku þema, og ég fékk að smakka Kasaura.  Það verður að segjast að það voru nokkur mjög góð vín smökkuð og nokkur hefðu auðveldlega getað verið vín mánaðarins. 

Nánar...
 
Vín mánaðarins Febrúar 2010 Prentvæn útgáfa


Vín mánaðarins Febrúar 2010colome
Ég hef oft verið beðinn um að smakka vín sem hefur “slegið í gegn” erlendis og satt að segja hef ég oftar en ekki komist að því að það vín er jú ágætt en kannski ekki alveg fyrir minn smekk. Vín mánaðarins í Febrúar er ekki eitt af þeim! Colomé Malbec Reserve frá Salta í Argentínu er án efa vel unnið vín með svörtum kirsuberjum og dökku súkkulaði í nefinu. Þetta er bragðmikið vín með Valrhona súkkulaði, svörtum kirsuberjum, papriku og alkóhól í lokin. Eftirbragðið er silkimjúkt og langt. Verðið er meira en ásættanlegt eða aðeins 2.990 kr., þess má geta að Vífilfell flytur þetta vín inn.

English

Nánar...
 
Vín mánaðarins janúar 2010 Prentvæn útgáfa
tommasi_lagunaFyrsta vín mánaðarins í ár er vín sem ég var beðin um að smakka fyrir meira en 6 mánuðum síðan. Einhverra hluta vegna setti ég vínið í vínrekkann og steingleymdi því. Það var ekki fyrr en á milli jóla og nýárs þegar konan bað um smá hvítvíns glas á meðan ég var að elda að vínið var smakkað. Mínar væntingar voru litlar sem engar, í fyrsta lagi kemur það frá svæði sem er betur þekkt fyrir rauðvín (Veneto) og svo er vínþrúgan (Trebbiano) best þekkt fyrir ósköp litlaus og bragðlaus vín. Mér til mikillar ánægju bragðast vínið mun betur en ég átti von á! Vínið heitir Tommasi Laguna frá Veneto, Ítalíu, er 2008 árgangur og fæst í Á.T.V.R. á 1.999 kr.. Vínið er frekar opið í nefinu með peru og sítrónubrjóstsykurs lykt. Bragðið er í sætari kantinum, en þó ekki í desert víns sætleika, með sítrónubrjóstsykur, peru, melónu og græn epla tón. Eftirbragðið er ferskt og meðal langt. Vínið er ekki til að geyma og má drekka strax og verður í góðu lagi fram að 2011. Þess má geta að vínið er flutt inn af Mekka.
 
Vín mánaðarins Desember 2009 Prentvæn útgáfa

Wolf Blass Red Label Shiraz-Cabernet 2007ShirazCabernet

Southeastern Australia, Ástralía
Vín fyrirtækið Beringer-Blass (Southcorp) í Ástralíu hefur sætt mikilli (og verðskuldaðri) gangrýni erlendis eftir sameiningu Penfolds, Rosemount, Lindemans og Wolf Blass.

Margir hafa sagt að vínin væru öll orðin eins á bragðið en með mismunandi miðum á flöskunum. Ég verð að játa það að mér finnst svolítið til í þessu, t.d. Rosemount að mínu mati hefur dalað all svakalega á undanförnum þremur árum og er ekki einu sinni með besta ástralska G.T.R. á markaðnum lengur.

En ekki er öll von úti, Wolf Blass og Lindemans eru ennþá að búa til gott vín í ódýrari verðflokki. Eitt gott dæmi er Wolf Blass Red Label Shiraz-Cabernet. Vínið er mjög opið með sólberja og lakkrís lykt. Bragðið er ávaxtaríkt með mikið af sólberjum, lakkrís og svo smávegis af papriku í bakgrunni. Eftirbragðið er meðal langt og gott. Vínið er ekki dýrt á núverandi mælikvarða eða aðeins 2.088 kr. í ríkinu.

Þetta vín er ekki að þykjast vera stærra en það er, það er ætlað til drykkjar núna, það á að vera ávaxtaríkt og auðvelt að drekka en samt sem áður er þetta mun fínlegra og meira flókið en ansi mörg önnur Shiraz-Cabernet á markaðnum í dag. Njótið þess með lambi, pasta og pizzu eða bara eitt og sér.

Nánar...
 
September 2009 Prentvæn útgáfa
Vín mánaðarins Sept. 09sept09
Spænsk vín hafa alltaf verið vinsæl á Íslandi og vín mánaðarins í september er engin undantekning. Í þó nokkur ár hefur fengist Beronia Tempranillo í Á.T.V.R., en ég verð að segja að mínu mati hafa gæðin verið ansi misjöfn í gegnum árin. En síðastliðnir tveir árgangar hafa verið stöðugir í gæðum og hrein unun að drekka. Til að toppa það hefur verðinu verið haldið innan við 2.000 kr., á meðan mörg vín í sömu gæðum hafa hækkað upp í 3.000 kr. eða meira!

Beronia Tempranillo 2006 frá Rioja, á Spáni, hefur mikið ristað brauð, rifsber og vanillu í nefinu. Vínið er bragðmikið en samt silkimjúkt með góðu vanillu, jarðaberja og kanil bragði. Eftirbragðið er langt með góðu jafnvægi á milli tannín og ávaxta.

Vínið er tilbúið núna en má geyma í 2-3 ár í viðbót.

Verðið er 1.998 kr. og umboðsaðili er Bakkus ehf.
 
Júlí 2009 Prentvæn útgáfa
Kaup mánaðarins júlí 09.jul09
Canepa Pinot Grigio Reserva 2007
Molina, Curico Valley, Chile
Verð: 1.920 kr. (í reynslusölu)
Umboðsaðili: Vínkaup

Lýsing: Perur og krydd í nefinu. Ferskt og meðal þurrt vín með mikið peru og krydd bragð. Eftirbragðið er meðal langt og mjög ferskt.

Niðurstaða: Eitthvað sem sést ekki oft, Pinot Grigio frá Chile sem bragðast vel! Njótið þess núna, enda tilvalið sumarvín.
 
Maí 2009 Prentvæn útgáfa
Kaup mánaðarins Maí 2009mai09
Arthur Metz Gewurztraminer 2008
Alsace, Frakkland
Verð: 1.699 kr. Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni
Umboðsaðili: Mekka

Lýsing: Lykt af blómum, ferskjum og þroskuðum perum. Peru, fjólu, krydd og ferskju bragð. Eftirbragðið er meðal langt og kryddað.

Niðurstaða: Sjaldan finnst mér það takast hjá stóru Alsace vínframleiðendunum að búa til vín sem er í senn tilbúið að drekka en er flókið og krefjandi. Í þessu tilfelli tókst það! Prófið þetta vín með feitum fiski eða tikka masala í staðinn fyrir Pinot Gris einhvern tíma.
 
Apríl 2009 Prentvæn útgáfa
Kaup mánaðarins Apríl 2009apr09
Cantina Zaccagnini,
Abruzzo, Ítalía
Vínþrúga: Montepulciano d´Abruzzo
Verð: 1.883 kr. sölustaðir: Kringlunni, Skútuvogi, Heiðrún
Umboðsaðili: Vín trio

Lýsing: Létt í nefinu með smávegis af svörtum kirsuberjum og negul lykt. Meðal þurrt vín með kirsuberja, græn pipar, gulri papriku og negul bragði. Eftirbragðið er meðal langt og ferskt með smávegis af tannín.

Niðurstaða: Smart vín, létt, ferskt, og bragðgott. Tilvalið að drekka það með grilluðu grísakjöti eða kjúkling. Abruzzo svæðið er ekki þekkt fyrir hágæða vín, en það er gaman að sjá að það er að breytast.
 
Mars 2009 Prentvæn útgáfa
Kaup mánaðarins Mars 2009mars09
Chateau Lamothe Vincent heritage 2007
Bordeaux Superior
Bordeaux, Frakkland
Vínþrúga: Sauvignon Blanc
Verð:1.999 kr.
Umboðsaðili: Víno

Lýsing: Ferskjur, sítrónur og smá eik í nefinu. Ferskjur, perur, steinefni og sýra í bragði með smávegis af kryddi í bakgrunni. Eftirbragðið er langt og sýruríkt.

Niðurstaða: Það vita allir að Bordeaux framleiðir gott rauðvín en flestir gleyma að til eru ansi góð hvítvín líka, þetta er eitt af þeim.
 
Janúar 2009 Prentvæn útgáfa
Kaup mánaðarins janúar 09jan09
Valdehermoso Terruno Hombre
Ribera del Duero, Spánn
Verð: 2.280 kr.
Umboðsaðili: sjf. innport
Vínþrúga: Tinta de Pais (Tempranillo)

Lýsing: Rifsber, jarðaber og alkóhól í nefinu. Þurrt og tannínríkt vín með alkóhól, leður, rifsberja og grænpipar bragði. Eftirbragðið er frekar langt og þurrt.

Niðurstaða: Mjög bragðgott vín, en meira matar vín en til að drekka eitt og sér. Skothelt með kjúklingaréttum.
 
Desember 2008 Prentvæn útgáfa
Kaup mánaðarins Desember 2008des08
Ath. vegna efnahagsástandsins verður hámarks verð á kaupum mánaðarins fært úr 2.000 kr. upp í 3.000 kr.
Domaine des Malandes, Montmains Premier Cru 2006
Chablis, Bourgogne, Frakkland
Verð: 2.790 kr. (ath. þarf að sér panta.)
Umboðsaðili: Víno ehf.

Lýsing: Bananar og ananas í nefinu. Kalk, sítrónu, lime, ananas og peru bragð. Eftirbragðið er þykkt og kremað með smávegis af lime í bakgrunni.

Niðurstaða: Ekta vín fyrir íslenskan fisk eins og þorsk, lúðu og skötusel. Tilbúið núna en verður samt mjög ferskt og gott næstu tvö ár.
 
Október 2008 Prentvæn útgáfa
Kaup mánaðarins Október 2008okt08
De Martino Legado Reserva Cabernet  Sauvignon 2004
Maipo Valley, Chile
Verð: 1,724 kr. (ath. Þarf að sérpanta)
Umboðsaðili: R.S. Vín

Lýsing: Sólber og kaffi eru áberandi í nefinu. Bragðmikið vín með sólberjum, dökku súkkulaði, kaffi, grænni papriku og smávegis af svörtum pipar. Eftirbragðið er langt og mjög alkóhólríkt.

Niðurstaða: Mjög gott vín, ekta matar vín sem er tilbúið að drekka núna. Þess má geta að það er skemmtileg og greinargóð lýsing á íslensku á miðanum aftan á (þó ég fyndi ekki kirsuberja ilminn).
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 5