|
Frá því að spænski presturinn Juniperro Sierra fór að rækta missionary vínþrúgur í Kaliforníu seint á 17. öldinni hefur vínrækt verið mikilvægur landbúnaður þar.
Árið 1849 kom mjög sérstakur og skemmtilegur athafnamaður að nafni Agoston Haraszthy til Kalíforníu. Þessi maður maður var fyrstur til að koma með og rækta “noble” vínþrúguna ( Cabernet, Merlot o.s.frv.) í Kaliforníu og ræktaði hann hana við góðan orðstír. Hann stofnaði Buena Vista Winery árið 1857 og varð það frægt í Bandríkjunum fyrir hágæða vín. Árið 1861 var hann beðinn um að fara til Evrópu fyrir hönd ríkisstjórnar Bandaríkjanna, til að safna upplýsingum og plöntum fyrir vínræktun í Kalíforníu. Hann kom heim með 100,000 plöntur af 300 mismunandi tegundum, en fékk aldrei borgað fyrir þær. Að lokum gafst hann upp og fór til Nicaragua og fór að framleiða romm. Þess má geta að Buena Vista er enn starfandi í dag.
|
|
Nánar...
|
|
Washington fylki er með talsvert meiri hefð í vínrækt en fólk gerir sér grein fyrir. Vín var fyrst ræktað þar árið 1825 í Fort Vancouver hjá Columbia ánni, en því miður voru notaðar hefðbundnar Vitis Labrusca þrúgur sem gáfu af sér frekar ómerkileg vín.
Hágæða vín var í raun ekki farið að framleiða fyrr en eftir bannárin ca. 1937, en þá voru komnir 42 vínframleiðendur í fylkinu. Þeir voru enn að rembast við Concord þrúgur og aðrar Labrusca þrúgur fram að ca. 1950 þegar Dr. Walter Clore kallaður “grandpa grape” sýndi að hægt var að rækta ekta Vinifera þrúgur sem gáfu af sér mun betri vín, eins og Riesling, Cabernet Sauvignon og fleiri. Einn af fyrstu vínframleiðendunum sem ræktaði Vinifera þrúgur, var fyrirtæki sem hét American Wine Growers. Í dag er það betur þekkt sem Chateau Ste- Michelle, en það fyrirtæki setti Washington endanlega á vínræktar kortin árið 1972, þegar eitt vínið þeirra, Johannisberg Riesling vann stóra vínkeppni í Californiu. Í dag er Washington fylki næst stærsta vínframleiðslu fylki í Bandríkjunum á eftir Californiu.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|