argentina

 

einarben_logo_2002

follow me on twitter

twitter_logo_header

Vínfyrirlestur

vinfyrirlestur

Hefur þú áhuga á að fá vínsmakkarann til þín til að halda vínfyrirlestur?

Kannaðu verðskrá hér

DVD Vínsmakkarinn

Vinsmakkarinn_2

DVD diskurinn Vínsmakkarinn er kominn!

Nú eru komin fyrstu eintökin af  “Vínsmakkarinn”, sem verða til sölu eingöngu í gegnum smakkarinn.is!!

Til að panta diskinn smellið hér
Frakkland
Suður Frakkland

Suður Frakkland er stærsta vínframleiðslu svæði í heiminum í dag. Bara Languedoc eitt og sér er stærsta vínsvæði í heimi !!  Árið 1998 voru framleiddir í Langduedoc 3,5 milljónir hektólítra af víni. Þar eru notaðar 31 vínþrúgu tegund, og án efa er þar mest framleitt af vin de pays í Frakklandi.  Hér fyrir neðan er stutt lýsing á Languedoc – Rousillon og Madiran  svæðunum, og helsta vínflokknum sem er notaður þar, Vin de Pays.

Nánar...
 
Búrgund

Í fimmtu og síðustu greininni um Búrgund verður fjallað um Cote Chalonnaise, Maconnais og önnur minna þekkt svæði. Þó að þessi svæði séu ekki eins þekkt og Cote de Beaune, Beaujolais, Cote de Nuits og Chablis, þýðir ekki að svæðin séu verri fyrir vikið. Þvert á móti, svæðin sem við fjöllum um eru oft óhefðbundnari en “betri” svæðin.

Fyrst verður fjallað um Cote Chalonnaise svo Maconnais og í lokin önnur athyglisverð svæði.

Nánar...
 
Chablis svæðið í Búrgund

Eitt merkilegasta hvítvíns svæðið í Búrgund er án efa Chablis svæðið. Það er Íslendingum ekki ókunnugt og meðal annars var eitt vinsælasta vínið í Á.T.V.R. til fjölda ára Thorin Petite Chablis, hvítvín sem sást á mörgum borðum á stór hátíðum hér áður fyrr, áður en vín byltingin fór af stað. Þó að Thorin vínið væri alls ekki slæm kaup, gaf það í raun ekki til kynna hversu há gæða vín frá Chablis getur verið.

Hvað er það sem gerir Chablis eitt besta hvítvíns svæði veraldar?

Nánar...
 
Cote de Nuits í Búrgund

Í annarri grein af fimm um Búrgund verður fjallað um Cote de Nuits sem er talið helsta rauðvíns svæðið í Búrgund. Eins og í flestum svæðum í Búrgund er aðal rauðvínsþrúgan Pinot Noir. Sú vínþrúga er almennt ekki talin eins þung og kröftug og Bordeaux vínþrúgurnar Cabernet Sauvignon, Merlot eða Cabernet Franc og alls ekki eins krydduð og Syrah/Shiraz vínþrúgan. En sagt er að Pinot Noir beri meiri “klassa” og sé meira “´vandaðra” vín. Hvort þetta er satt verður hver og einn að dæma, en engin getur neitað því að vel gert rautt Búrgund vín er hrein unun að drekka! Pinot Noir hefur ákveðin eiginleika þegar það er fullþroskað, það gefur af sér mikið af sveita, villi sveppa og fjósa lykt og bragð. Þó að þetta hljómi ekki beint vel, er þetta bragð sem hentar afar vel með alls konar mat og gerir meðal annars dádýr, hreindýr og villifugla að stórkostlegri máltíð.

Nánar...
 
Cote de Beaune í Búrgund

Í þriðju greininni  af fimm um Búrgund ætlum við að skoða Cote de Beaune. Vínbændur í Cote de Beaune líta á svæðið sitt sem besta hvítvíns svæðið í Frakklandi og jafnvel þó víðar væri leitað. Satt að segja er þetta ekki bara hroki, jafnvel Chablis og Loire svæðin geta ekki sagt að þeir eigi svo mörg svæði sem framleiða langlifuð og hágæða vín!! Eins og í öllum Búrgund svæðum er AC Grand Cru hæsti gæðaflokkur, AC Premier Cru aðeins fyrir neðan það og AC Bourgogne aðeins fyrir neðan Premier Cru í gæðum. Nánast öll hvítvín sem eru framleidd í Cote de Beaune eru búin til úr Chardonnay vínþrúgunni, og þó að svæðið sé þekktast fyrir hvítvín, er einnig búið til mjög gott rauðvín þar. Meðal annars eru stærstu rauðvíns Grand Cru svæðin í Búrgund, Corton í Cote de Beaune. En það skondna við það er að Corton er eina rauðvíns Grand Cru svæðið í Cote de Beaune!! Farið verður í gegnum svæðin frá norðri til suðurs.

Nánar...
 
Beaujolais í Búrgund

Hver kannast ekki við hið heimsfræga Beaujolais Nouveau vín sem kemur til landsins með pompi og prakt þriðja fimmtudag í Nóvember á hverju ári. Það getur enginn neitað því að hugmyndin á bak við Beaujolais Nouveau var hrein markaðsetningar snilld. Þegar best lét var Beaujolais svæðið heimsfrægt. Vínbændur seldu vörur sínar án þess að hafa of mikið fyrir því, á hlægilega góðu verði og það skapaðist alltaf ákveðin partí stemning hjá almenningi þegar vínið kom til landsins. En eins og öll partí fyrr eða síðar endar það og fólk fer aftur í raunveruleikann. Í tilfelli Beaujolais voru menn orðnar ansi gráðugir og til að græða meira fengu umboðsaðilar leyfi til að geyma vínið hjá sér, þannig að í staðin fyrir að sækja vínið alla leið til Frakklands, var það klárt til afhendingar í vöruskemmu eina mínútu yfir miðnætti. Ansi mörgum vínframleiðendum var alveg sama um gæði vínsins og markaðurinn fylltist af víni sem var varla ½ skrefi fyrir ofan heimabrugg og svo fóru önnur vínframleiðslu svæði að herma eftir Nouveau hugmyndinni. Í lokin hrundi allt saman og þó það sé ennþá til Beaujolais Nouveau, er það ekki nærri eins vinsælt og það var. Núna eru Beaujolais vínframleiðendur í virkilega vondum málum, gull kálfurinn Nouveau er hætt að gefa af sér en almenningur heldur að öll Beaujolais vín bragðist eins og Nouveau sem gerir það að verkum að það hreyfast ekki vín frá Beaujolais í dag.

Nánar...